Hin íslenska litabók
Ferðastu um Ísland og gefðu sköpunargleðinni lausan tauminn með þessari skemmtilegu og einstöku litabók úr smiðju listakonunnar Sísíar Ingólfsdóttur. Í Hinni íslensku litabók má finna 54 myndir sem sýna íslenska náttúru, þjóðlíf, menningu og ýmis sérkenni íslensku þjóðarinnar. Meðal þess sem finna má á myndunum er:
•Víkingar í daglegu amstri
•Kirkjufell undir norðurljósum
•Gleðigangan
•Djákninn á Myrká
•Hvalir við strendur Íslands
•Fjallkonan
…og margt, margt fleira!