saga líkama er lygi líkama og saga líkama
er uppspuni fiðrilda
og saga líkama er ólympíumót dýfingamanna
saga líkama snertir góma
svarar fingrum
fagnar blóði
fer þýð niður hálsa
blandast munnvatni framandi vara
Björk Þorgrímsdóttir hefur áður sent frá sér ljóðabækurnar Bananasól og Neindarkennd og hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör 2020 fyrir ljóðið „Augastein“. Ljóð hennar eru margslungin og draumkennd og seiða lesanda með djúpri tilfinningu