Vettlingarnir í þessari bók eiga sér fyrirmyndir frá 19. og 20. öld sem varðveittar eru á Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi.
Þessar nýju útfærslur gera okkur kleift að viðhalda þeirri þjóð¬legu hefð að nota handprjónaða vettlinga og um leið að halda til haga fallegum sígildum mynstrum frá gömlum tíma.
Áhersla er lögð á að hafa úrvalið fjölbreytt, bæði í mynsturgerð og prjóntækni, svo að hér geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi.
GUÐRÚN HANNELE HENTTINEN, höfundur bókarinnar, er textílkennari að mennt og hefur kennt prjón í mörg ár. Hún hefur rekið garnverslunina Storkinn í meira en áratug.
Íslenskir vettlingar
5.395 kr.
Lítið magn á lager