Jæja 2 er ætluð nemendum sem hafa einhvern grunn í íslensku.
Efni bókarinnar er á þyngdarstigi A1-A2 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum og bera þemu og orðaforði þess merki. Áhersla er lögð á orðaforða og talæfingar um málefni er standa ungu fólki nær. Mikið er af myndum í bókinni og hentar hún því nemendum óháð uppruna þeirra.
Jæja 2 getur einnig hentað fólki sem hefur meiri grunn í íslensku en vill styrkja orðaforða sinn í íslensku.
Höfundar bókarinnar eru Brynja Stefánsdóttir og Viðar Hrafn Steingrímsson.
Þau hafa áralanga reynslu af tungumálakennslu í framhaldsskólum með áherslu
á íslenskukennslu fyrir erlenda nemendur.
Höfundar: Brynja Stefánsdóttir og Viðar Hrafn Steingrímsson