Bill Browder snýr hér aftur í kjölfar metsölubókar sinnar, Eftirlýstur, með aðra hörkuspennandi bók sem lýsir því hvernig hann afhjúpaði viðleitni Pútíns til að stela og þvætta hundruð milljarða Bandaríkjadala frá Rússlandi og að Pútín sé reiðubúinn að drepa hvern þann sem stendur í vegi fyrir honum.
Browder dregur hér upp mynd af rússnesku ríkisstjórninni sem glæpagengi sem fer með öll völd í landinu. Ofsóttur er hrikaleg en sönn saga sem gerist í hásölum pólitísks valds þar sem svik, mútur, spilling og misþyrmingar viðgangast hvar sem litið er. Þetta er í senn saga um fjármálaglæpi, alþjóðlegt ævinty´ri og ástríðufullt ákall um réttlæti.
Ofsóttur er áhrifarík og uppbyggileg saga um það hvernig einn maður getur tekist á við einhvern hættulegasta og ósvífnasta glæpamann í heimi.