Jarmalandskrónikan ? 1. hluti
Í fjallakastalanum Salajak, langt norður í landi, vakna vættirnar og breiða út vængi sína eftir langan vetrardvala. Þær hungrar í kjöt, ferskt kjöt … Á sama tíma strjúka þrír bræður að heiman til að ganga til liðs við árásarherinn sem á að stöðva vættina og binda enda á illvirki þeirra. Þeir ferðast með hernum að Jarmalandi, hyldýpinu handan við Salajak, þar sem gyðjan Hel ræður ríkjum.
Orrustan um Salajak gerist í Svíþjóð á fjórtándu öld og er fyrsta bókin af fjórum í Jarmalandskrónikunni. Æsispennandi fantasía þar sem hetjurnar ungu hverfa út í kalda og myrka veröld til að berjast við vætti, álfa og lindorma með hugprýðina eina að vopni.
?Minnir áþreifanlega á Game of Thrones … Johan Theorin fléttar saman norrænni goðafræði, göldrum og lífinu á miðöldum í blæbrigðaríkri frásögn.? ? Dagens Nyheter
?Frábærlega góð og sannfærandi saga, ótrúlega spennandi.? ? Tidningen Kulturvinden
Orrusta um Salajak
5.395 kr.
Ekki til á lager
- Höfundur: Theorin, Johan
- Útgáfa: 1
- Útgáfuár: 2021
- Útgefandi: BOKAFELAGIDU
- ISBN: 9789935212672