Nú held ég til fundar við gamalt þorp og gamla tíma. Ég hef verið kölluð til þess fundar.
Miðaldra hárgreiðslukonan Rósa leggur skærin á hilluna, flytur austur í Mjóafjörð og kemur á fót óvenjulegri ferðaþjónustu í Lísuhúsi. Þar býðst fólki að leggjast á bekk undir eldhúsglugga og sjá út um hann með hjálp spegla. Meðan legugestir setja sig í spor Lísu sem lá lömuð á þessum sama bekk um miðja síðustu öld bakar Rósa fyrir kaffihúsið og hugsar til Katrínar ömmu sinnar sem sá um Lísu og heimilið.
Speglahúsið er í senn samtímasaga og sögulegt skáldverk, um þrjár konur á tvennum tímum innan um sömu spegla í sama húsi.
Benný Sif Ísleifsdóttir hefur vakið mikla athygli og lof undanfarin ár fyrir skáldsögur sínar um íslenskar alþýðukonur, örlög þeirra, sigra og sorgir. Hansdætur var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Evrópusambandsins og Gríma hlaut Íslensku hljóðbókaverðlaunin.
Speglahúsið
7.495 kr.
Lítið magn á lager