Í þessari bók er rekin saga bændaútgerðarinnar í Vogum og á Vatnsleysuströnd allt frá elstu fáanlegu heimildum fram á þriðja áratug tuttugustu aldar þegar vélbátar höfðu leyst árabátana af hólmi. Sagt er frá áhrifum Viðeyjarklausturs á svæðinu, konungsútgerð, spítalafiski, sjósókn, netaveiðideilum, saltfiskverkun sjóbúðum og þilskipaútgerð.
Bókin byggir á viðamikilli könnun frumheimilda í fornbréfasafni, Þjóðskjalasafni og fleiri skjalasöfnum sem gefur í mörgum tilfellum nýja sýn á söguna, bæði sögu svæðisins sem og sjósóknar. Hún er öllum áhugasömum um útgerðarsögu fróðleg lesning og fræðandi um lífshætti þeirra sem sóttu sjóinn og byggðu landið fyrr á öldum.
Út á brún og önnur mið
12.995 kr.
Lítið magn á lager