Örsagan á sér langa hefð í Rómönsku-Ameríku og sýnir bókin gróskuna og fjölbreytileikann sem hún hefur öðlast í meðförum rithöfunda álfunnar.
Bókin er sýnisbók og geymir alls kyns sögur. Oft er stutt í húmorinn, háðið og fantasíuna, stundum vilja sögurnar bíta og koma við kvikuna. Sögurnar eru 156 talsins eftir 49 höfunda frá Rómönsku-Ameríku, sú elsta er frá 1893 og sú yngsta frá 2014.
Ritstjóri: Ásdís R. Magnúsdóttir. Kristín Guðrún Jónsdóttir valdi sögurnar, þýddi og skrifaði inngang.